Útskurðarsett með þremur hnífum með valhnetuhandföngum frá BeaverCraft

$ 98.25

Vandað útskurðarsett sem inniheldur þrjá hnífa fyrir tréútskurð, tálgun og fjölbreytt verkefni. Hnífarnir eru með fallegum handföngum úr valhnetu sem gefa settinu flott útlit og gott grip. Settið kemur í leðurhulstri og því auðvelt að geyma hnífana og taka þá með sér. Hnífasettið hentar öllum þeim sem vilja vandaðra sett en einföld byrjendasett og byrjendur sem vilja byrja með góð verkfæri. Settið hentar fyrir tálgun, smærri útskurðarverkefni, mótun, smáatriði og almenna handavinnu í mjúkum við. Helstu eiginleikar Þrír hnífar fyrir tálgun og tréútskurð Handföng úr valhnetu sem gefur fallegt útlit og þægilegt grip Hnífar úr 1066 kolefnisstáli Harka: 57–59 HRC Scandi egg sem hentar vel í tréútskurð Leðurhulstur fylgir fyrir örugga geymslu og flutning Leðurstrigill og fægimassi fylgja til að viðhalda bitinu Hentar fyrir fjölbreytt verkefni, smáatriði og almenna tálgun Frábær gjöf fyrir áhugafólk um handverk og tréútskurð Hvað fylgir með? C1 Sloyd Whittling Knife – fjölhæfur hnífur fyrir almenna tálgun C3 Sloyd Carving Knife – minni hnífur fyrir nákvæmari skurði C4 Whittling Sloyd Knife – stærri hnífur fyrir lengri skurði og mótun Leðurhulstur fyrir hnífana fyrir örugga geymslu og flutning Fægimassi fylgir með til að viðhalda bitinu Tæknilegar upplýsingar eru neðar á þessari síðu.